Logo: opti-pack, link to front pageLogo: opti-pack, link to front page
opti-pack
 Dansk Dansk   Print Print  Log in Log in  Search Search
You are here: opti-pack > X - Iceland

X - Iceland

Í umbúðatilskipuninni (94/62/EC og 2004/12/EC) og sex stöðlum, EN13427-13432, eru skilgreindar kröfur sem umbúðir skulu uppfylla á evrópskum markaði. En í stöðlunum eru ekki settar fram nákvæmar leiðbeiningar um hvernig skuli uppfylla kröfurnar, einkum er kemur að lágmörkun á umbúðamagni. Opti-Pack er norrænt verkefni sem hefur að markmiði að útbúa slíkar leiðbeiningar. Opti-Pack samanstendur af nokkrum þáttum:

  • Kerfislýsing með almennri lýsing á Opti-Pack kerfinu og uppbyggingu þess. Hér er að finna bakgrunn og hugmyndafræði tilskipananna og staðlanna ásamt leiðbeiningunum um vinnuferli og skráningu gagna.  
  • Verkfærakassi (Toolbox) með ýmsar gagnlegar aðferðir til að meta hvort of mikið eða of lítið sé notað af umbúðum og hvernig megi lágmarka þær, án þess að það bitni á gæðum. Þetta er sambland af fræðilegri umfjöllum og aðferðafræði. Líta má á þennan hluta sem kennslubók sem nýtist til að byggja upp þekkingu á mati á umbúðum innan fyrirtækja. Þar er einnig að finna:
    • Lýsingar á prófunarbúnaði sem nota má til að lágmarka umbúðir. Bæði er lýst einföldum búnaði sem og flóknari búnaði sem finna má á sérhæfðum rannsóknarstofum.
    • Aðferðir og gátlistar sem styðja við þær aðferðir sem nota má innan fyirrtækja við mat á umbúðum.
    • Leiðbeiningar um hvernig reikna má og nota lykiltölur sem hjálpartæki við að meta og skrá umbúðanotkun.

Verkfærakassinn er þannig upp byggður að nokkrar aðferðir geta verið sýndar til að meta sama þátt. Notandi getur valið hvaða aðferð hentar honum en rétt er að taka fram að allar þessar aðferðir hafa sínar takmarkanir.

 

Að lágmarka umbúðanotkun er flókið verkefni sem krefst þess að lagt sé mat á allt það sem hent getur umbúðirnar í vörukeðjunni.  Rangar ákvarðanir við val á umbúðum geta valdið miklum skaða ef þær eru of veikar og vörur eyðileggjast en á hinn bóginn getur legið mikill kostnaður í of dýrum umbúðum sem eru sterkari og vandaðari en þörf er á.

 

Hver vara og sérhvert fyrirtæki eru sérstök og ógerlegt er að finna leið sem hentar öllum. Opti-Pack býður fram nokkrar leiðir sem velja má úr. Opti-Pack er ekki fullkomin og endanleg lýsing á mati á umbúðum og framleiðendur eru hvattir til að nýta afrakstur verkefnisins samhliða þeim leiðum sem þeir sjálfir hafa tileinkað sér eða munu þróa í framtíðinni.

NIF

 See also